Prentað fimmtudaginn 29. júlí kl. 23:25 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Hvað er fallegasta landssvæðið á Íslandi?

Austfirðir

Norðurland

Reykjanes

Suðurland

Vestfirðir

Vesturland

Borgarfjörður: Laugardag 14. ágúst
Borgarnes
Akranes: Miðvikudag 1. september
á Safnasvæðinu í Görðum
Snæfellsnes: Mánudag 6. september
Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Dýrfinna útnefnd bæjarlistamaður Akraness

9. febrúar 2010

Gunnar Sigurðsson, Dýrfinna og Þorgeir Jósefsson.
Við athöfn í Bæjarþingsalnum á Akranesi síðdegis í dag var tilkynnt að Dýrfinna Torfadóttir gullsmiður og skartgripahönnuður verði bæjarlistamaður Akraness næsta árið. Í rökstuðningi stjórnar Akranesstofu fyrir tilnefningunni segir meðal annars að Dýrfinna hafi vakið athygli víða um land fyrir skartgripi sína og margvíslega hönnun. Um leið hafi hún vakið athygli á Akranesi með störfum sínum og listsköpun. Hún hafi m.a. skipulagt heimsóknir hópa gesta og ferðafólks til bæjarins til að kynna þeim listsköpun og menningu á Akranesi og allt það sem bærinn hefur upp á að bjóða. Í greinargerðinni segir ennfremur að Dýrfinna hafi sem skartgripahönnuður skapað sér sérstakan og persónulegan stíl, sem einkennist af frumlegri og oft óhefðbundinni efnismeðferð og djarfri útfærslu.

 

 

Með þessu hafi hún skipað sér í röð eftirsóknarverðustu gullsmiða og skartgripahönnuða á Íslandi. Dýrfinna hlaut 1. verðlaun fyrir tískuskartgrip ársins þrjú ár í röð frá ’97-’99.

Dýrfinna fæddist í Reykjavík 1955 en ólst upp á Ísafirði. Hún bjó þar eftir að námi lauk en hún fluttist á Akranes haustið 2001. Dýrfinna nam sitt fag á Akureyri og í Valdres í Noregi þar sem hún lauk meistaranámi í gullsmíði árið 1983.

 

Dýrfinna sagði þegar hún hafði veitt viðurkenningunni viðtöku að sér væri þetta mikill heiður og tilhlökkun. Um leið einnig hvatning, en það fylgir bæjarlistamanninum að halda sýningu í lok árs þar sem afraksturinn verður kynntur. Fráfarandi bæjarlistamaður Akraness er Friðþjófur Helgason ljósmyndari. Á liðnu hausti var sú breyting gerð að tillögu stjórnar Akranesstofu að bæjarlistamaður er nú tilnefndur árlega í stað einu sinni á kjörtímabili bæjarstjórnar áður.

 

 

 
 
Deila


SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:



Hvað er þrír plús fjórir?

  

Skilaboð

Nafn sendanda:



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Undirskrift 

 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 23:10  SA 3  13°C
Akrafjall 23:10  ANA 5  14°C
Hafnarfjall 23:00  SA 1  15°C
Vatnaleið 23:10  ASA 3  13°C
Hraunsmúli 23:10  NV 1  14°C
Fróðárheiði 23:10  A 3  10°C
Brattabr. 23:10  NNA 1  12°C
Holtav.h. 23:10  NNA 2  10°C
Laxárdalsh. 23:10  A 4  10°C
Svínad. 23:10  N 1  12°C
 
Akrafjall 23:00  ANA 5  14,1°C
Ásgarður 23:00  N 2  14,0°C
Brattabrekka 23:00  Logn 0  11,8°C
Fróðárheiði 23:00  ASA 3  10,3°C
Grundarfj. 23:00  SSA 2  13,4°C
Gufuskálar 23:00  ANA 5  13,7°C
Hafnarfjall 23:00  SA 1  15,4°C
Holtavörðuheiði 23:00  N 3  10,4°C
Hraunsmúli 23:00  NNV 1  13,8°C
Húsafell 23:00  ASA 4  14,3°C
Hvanneyri 23:00  A 5  14,8°C
Kjalarnes 23:00  ASA 4  13,4°C
Reykhólar 23:00  Logn 0  13,4°C
Stykkishólmur 23:00  NNA 2  13,9°C
Vatnaleið 23:00  ASA 3  12,6°C
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent